Skátafélög landsins heimsótt

Þessa vikuna og næstu verða kynningar á nýjum foringjahandbókum fyrir skátaforingja haldnar hjá skátafélögum um allt land. Fulltrúar frá BÍS heimsækja félögin og fara yfir í hverju breytingarnar felast,  kynna bækurnar og þann stuðning sem félögunum stendur til boða í innleiðingunni. Útgáfuhátíð var haldin í Skátamiðstöðinni mánudaginn 22. ágúst þar sem ríflega 80 manns mættu að kynna sér bækurnar. Bókunum var vel tekið og margir foringjar eru orðnir spenntir að takast á við nýjar áskoranir.

Add a Comment

Skráning

Facebook