Skátadaginn héldum við hátíðlegan 1. september síðastliðinn. Við Andapollinn mættu um 250 manns og hófu með okkur 30 ára afmælisvetur félagsins. Boðið var upp á kanósiglingar á tjörninni, kassaklifur, brauð yfir eldi, klifur og að lokum voru grillaðar pylsur ofan í mannskapinn. Vonandi mun þetta vera upphafið af góðum vetri hjá félaginu. Skátafundir eru svo að hefjast hver á fætur öðrum og hvetjum við alla til að mæta.
