ágú. 29 2011 2:24

15 hressir skátar fóru á Jamboree í Svíþjóð í sumar. Undirbúningur hafði staðið yfir lengi og má segja að þetta hafi verið ný upplifun á skátarfi fyrir marga. Þarna voru nefnilega saman komin um 40.000 skátar frá um 150 þjóðum. En fjöldi þjóða er ekki einu sinni svona mikill á Ólympíuleikunum. Þarna voru allir vinir hvaðan sem þeir komu.
