Eins og margir taka eftir þá höfum við tekið í notkun nýja heimasíðu með nýju kerfi sem á að auðveda okkur alla umsýslu á vefnum sem gerir hann vonandi líflegri. Við vonumst eftir að foreldrar, skátar og foringjar muni nýta sér vefinn betur. Samhliða þessu munum við gera breytingar á Facebook hjá okkur og fara að notast við síðu í stað þess að vera persóna. Hérna til hægri er hægt að "líka" við Segul og um leið sjá nýjustu færslurnar.
Þetta er í anda þeirra breytinga hjá okkur að opna betur fyrir samskipti við skáta og foreldra og nýta okkur betur þá möguleika sem eru á netinu til þess. Auk þess að minka pappírseyðslu. Við hvetjum því alla að líka við Skátafélagið Segul á Facebook og fylgjast reglulega með síðunni. Á næstu dögum munum við bæta við efni á síðuna um leið og það er klárt.
