Skráning á Landsmót skáta er í fullum gangi. Þar munum við fagna 100 ára afmæli skátanna á Íslandi og eiga góða stund saman. Skráning fer fram hér. Þarna skráið þið börnin ykkar og gangið frá greiðslufyrikomulagi. Þeir sem ætla í fjölskyldubúðir þurfa ekki að skrá sig eins og staðan er núna en munu þurfa þess þegar nær dregur. Nánari upplýsingar um mótið má finna hér.
