Nú styttist í félagsútileguna sem verður 7.-9. október við Úlfljótsvatn.
Foreldrabréf fara heim með krökkunum í þessari viku, en einnig verður bréfið og útbúnaðarlisti sent í tölvupósti og sett hér inn á fimmtudaginn.
Mikilvægt er að ganga frá skráningu í félagið sem fyrst á www.skatar.is/skraning því ekki er hægt að skrá í útilegu nema búið sé að skrá í félagið á þessu ári. Þeir sem hafa verið áður verða að uppfæra skráninguna á hverju hausti. Þeir sem hafa greitt félagsgjöld fyrir haustönn eða allan veturinn fá afhentan félagsbol 2011 í útilegunni.
Skráningin í útileguna er svo á www.skatar.is/vidburdaskraning og skráningu lýkur að kvöldi 5. október.
