Fréttir

  • Landsmót skáta

    Skráning á Landsmót skáta er í fullum gangi. Þar munum við fagna 100 ára afmæli skátanna á Íslandi og eiga góða stund saman. Skráning fer fram hér. Þarna skráið þið börnin ykkar og gangið frá greiðslufyrikomulagi. Þeir sem ætla í fjölskyldubúðir þurfa ekki að skrá sig eins og staðan er núna en munu þurfa þess þegar nær dregur. Nánari upplýsingar … lesa

  • Hellaferð fálkaskáta og drekaskáta

    Kæru skátar og foreldrar/forráðamenn!

    Á fundum í næstu viku (24. og 26. október) ætla fálka- og drekaskátarskátar í Segli í hellaferð. Mæting er kl 17:15 (korteri seinna en venjulega) á bílastæðið við grillsvæðið undir Vífilsstaðahlíð. Foreldrar eiga að sækja skátana á sama stað kl 19:00. Skátarnir eiga að hafa með sér hjálm og ljós. Hjóla- eða … lesa

  • Foreldrabréf og útbúnaðarlistar fyrir félagsútilegu

    Tags: Félagsútilega

    Foreldrabréfið sem skátarnir fengu sent heim í síðustu viku og útbúnaðarlistar fyrir helgina eru nú komin á netið.

    Hægt er að nálgast það hér:

    (Ýta þarf á Lesa hnappinn til að virkja tenglana)

    Foreldrabréf

    Útbúnaðarlisti

    Equipment list (english) lesa

  • Félagsútilega

    Tags: Félagsútilega, félagsgjöld

    Nú styttist í félagsútileguna sem verður 7.-9. október við Úlfljótsvatn.

    Foreldrabréf fara heim með krökkunum í þessari viku, en einnig verður bréfið og útbúnaðarlisti sent í tölvupósti og sett hér inn á fimmtudaginn.

    Mikilvægt er að ganga frá skráningu í félagið sem fyrst á www.skatar.is/skraning því ekki er hægt að skrá í útilegu nema … lesa

  • Skátadagurinn

    Skátadaginn héldum við hátíðlegan 1. september síðastliðinn. Við Andapollinn mættu um 250 manns og hófu með okkur 30 ára afmælisvetur félagsins. Boðið var upp á kanósiglingar á tjörninni, kassaklifur, brauð yfir eldi, klifur og að lokum voru grillaðar pylsur ofan í mannskapinn. Vonandi mun þetta vera upphafið af góðum vetri hjá félaginu. Skátafundir eru svo að hefjast hver á fætur … lesa

  • Ný heimasíða

    Tags: Heimasíðan

    Eins og margir taka eftir þá höfum við tekið í notkun nýja heimasíðu með nýju kerfi sem á að auðveda okkur alla umsýslu á vefnum sem gerir hann vonandi líflegri. Við vonumst eftir að foreldrar, skátar og foringjar muni nýta sér vefinn betur. Samhliða þessu munum við gera breytingar á Facebook hjá okkur og fara að notast við síðu í stað þess að vera persóna. Hérna til hægri er … lesa

  • Segull í Svíþjóð

    15 hressir skátar fóru á Jamboree í Svíþjóð í sumar. Undirbúningur hafði staðið yfir lengi og má segja að þetta hafi verið ný upplifun á skátarfi fyrir marga. Þarna voru nefnilega saman komin um 40.000 skátar frá um 150 þjóðum. En fjöldi þjóða er ekki einu sinni svona mikill á Ólympíuleikunum. Þarna voru allir vinir hvaðan sem þeir komu.

    lesa

  • Skátafélög landsins heimsótt

    Þessa vikuna og næstu verða kynningar á nýjum foringjahandbókum fyrir skátaforingja haldnar hjá skátafélögum um allt land. Fulltrúar frá BÍS heimsækja félögin og fara yfir í hverju breytingarnar felast,  kynna bækurnar og þann stuðning sem félögunum stendur til boða í innleiðingunni. Útgáfuhátíð var haldin í Skátamiðstöðinni mánudaginn 22. ágúst … lesa

Skráning

Facebook

Drekaskátar 8-9 ára

Sveitarforingi: Birgitta Heiðrún Guðmundsdóttir

Fundartími: miðvikudögum kl 17-18

Fálkaskátar 10-12 ára

Sveitarforingi: Hjördís Björnsdóttir

Fundartími: mánudögum kl 17-18:30

Dróttskátar 13-15 ára

Sveitarforingi: Liljar Már Þorbjörnsson

Fundartímar: miðvikudögum kl 20-22